
Dagskrá
Miðvikudaginn 5. mars 2003 var haldinn deildarfundur í verkfræðideild í innri kaffistofunni í Tæknigarði. Fundur var settur kl. 15.10. Mætt voru: Sigurður Brynjólfsson, Anna Soffía Hauksdóttir, Birgir Jónsson, Bjarni Bessason, Helgi Þorbergsson, Hjálmtýr Hafsteinsson, Jóhann P. Malmquist, Jóhannes R. Sveinsson, Jón Atli Benediktsson, Jón Tómas Guðmundsson, Jónas Elíasson, Júlíus Sólnes, Magnús Már Halldórsson, Magnús Þór Jónsson, Oddur Benediktsson, Ólafur Pétur Pálsson, Páll Valdimarsson, Sigfús Björnsson, Sven Þ. Sigurðsson, Trausti Valsson, Valdimar K. Jónsson, Vilhjálmur Þór Kjartansson, Sigurður Erlingsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Ágúst Guðmundsson og Halldór Jónsson. Þá komu á fundinn Páll Skúlason, háskólarektor, Magnús Diðrik Baldursson, aðstoðarmaður rektors og fulltrúar úr senati deildar, þeir Sverrir Norland, Pétur Stefánsson og Steingrímur Hermannsson. Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Samþykkt án athugasemda
Núverandi fulltrúar eru Birgir Jónsson, Jón Atli Benediktsson og Jóhann P. Malmquist. Deildarforseti gerði tillögu um að fulltrúar deildar á háskólafundi frá og með 1. júlí nk. yrðu Birgir Jónsson, Anna Soffía Hauksdóttir og Jóhann P. Malmquist. Þetta var samþykkt samhljóða. Þá var einnig samþykkt samhljóða að Páll Jensson yrði varamaður.
Rektor fékk orðið og fjallaði um rannsóknavirkni háskólans og rannsóknastarfsemi. Miklar umræður spunnust um þetta efni, mest í tengslum við samkeppnishæfni námsins og fjármögnun.