
Dagskrá
87. deildarfundur verkfræðideildar var haldinn föstudaginn 20. september 2002 og hófst kl. 12:15 í fundarherbergi í Tæknigarði.
Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, deildarforseti, Birgir Jónsson, Jónas Elíasson, Júlíus Sólnes, Sigurður Erlingsson, Birna Pála Kristinsdóttir, Guðmundur R. Jónsson, Ólafur Pétur Pálsson, Páll Jensson, Pétur K. Maack, Anna Soffía Hauksdóttir, Egill B. Hreinsson, Jóhannes R. Sveinsson, Jón Atli Benediktsson, Sigfús Björnsson, Vilhjálmur Þ. Kjartansson, Ebba Þóra Hvannberg, Halldór Guðjónsson, Helgi Þorbergsson, Hjálmtýr Hafsteinsson, Jóhann P. Malmquist, Oddur Benediktsson, Sven Þ. Sigurðsson, Jón Tómas Guðmundsson og Magnús Már Halldórsson. Páll Valdimarsson kom á fundinn undir dagskrárliðum 6-8.
Aðjúnktar: Þorsteinn Þorsteinsson, Magnús Oddsson og Hákon Guðbjartsson, sem jafnframt var í dómnefnd um starf lektors eða dósents á sviði tölvuvélbúnaðar Fulltrúar nemenda Brynja Sigurðardóttir fulltrúi v&i-skorar og Emma María Swift v&i-skor. Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.
Í rannsóknamisseri eru Ragnar Sigbjörnsson og Magnús Þór Jónsson.
Forföll boðuðu Valdimar K. Jónsson og Fjóla Jónsdóttir.
Gestir voru Ragnar H. Jónsson í dómnefnd um framgang Jóns Tómasar Guðmundssonar og Elías Bjarnason í dómnefnd um starf lektors eða dósents á sviði tölvuvélbúnaðar við r&t-skor.
Engar athugasemdir.
Deildarforseti gerði grein fyrir stöðu mála og horfum. Helstu mál deildar sem hann ræddi voru nemendafjöldi, kennslumál, húsnæðismál, fjármál o.fl.
Jón Atli Benediktsson, prófessor var formaður dómnefndar. Með honum í dómnefndinni voru Sigfús Björnsson, prófessor, fulltrúi háskólaráðs og Ragnar H. Jónsson, verkfræðingur, fulltrúi Menntamálaráðuneytis. Formaður dómnefndar gerði grein fyrir álitinu. Það var einróma álit dómnefndar að Jón Tómas Guðmundsson væri hæfur til að gegna starfi dósents við verkfræðideild Háskóla Íslands.
Rætt var um hlutverk framgangsdómnefnda almennt varðandi tilmæli til umsækjenda um hvert þeir beindu rannsóknum sínum, þ.e. hvort það væri hlutverk dómnefnda eða ekki að gera slíkt.
Formaður r&t-skorar Jóhannes R. Sveinsson, gerði grein fyrir afgreiðslu skorar varðandi framganginn. Niðurstaða skorar í atkvæðagreiðslu um framganginn, sem var á skorarfundi 12. mars 2002, var á þá leið að 5 greiddu atkvæði sem féllu þannig að 2 sögðu já og auðir seðlar voru 3.
Deildarforseti og formaður r&t-skorar þökkuðu dómnefndarmönnum fyrir þeirra störf.
Þá var gengið til atkvæðagreiðslu á deildarfundinum. Niðurstaða atkvæðagreiðslu var þannig að 15 sögðu já, nei sögðu 3 og auðir seðlar voru 6. Deildarfundur samþykkir því að leggja til við rektor, að Jón Tómas Guðmundsson fái framgang í starf dósents.
Tveir umsækjendur voru um starfið, þeir Ásgeir Þór Eiríksson og Kjartan Harðarson.
Formaður dómnefndar var Sigfús Björnsson, prófessor. Aðrir í dómnefndinni voru Elías Bjarnason, fulltrúi háskólaráðs og Hákon Guðbjartsson, skipaður af Menntamálaráðuneytinu.
Formaður dómnefndar gerði grein fyrir álitinu. Niðurstöður dómnefndar voru þær að báðir umsækjendur væru hæfir til að gegna umræddu starfi á dósentsstigi.
Formaður r&t-skorar, Jóhannes R. Sveinsson, tilkynnti niðurstöður atkvæðagreiðslu í skor þann 9. september sl. Átta greiddu atkvæði. Ásgeir Þór Eiríksson fékk 7 atkvæði og Kjartan Harðarson 1 atkvæði.
Deildarforseti og formaður r&t-skorar þökkuðu dómnefnd hennar störf.
Þá var gengið til atkvæðagreiðslu á deildarfundi. Niðurstöður atkvæðagreiðslu urðu þær að Ásgeir Þór Eiríksson fékk 19 atkvæði, Kjartan Harðarson fékk 2 atkvæði og 2 seðlar voru auðir. Deildarfundur verkfræðideildar samþykkir því og leggur til við rektor að Ásgeir Þór verði ráðinn í starf dósents við rafmagns- og tölvuverkfræðiskor.
Birna Pála Kristinsdóttir vék af fundi á meðan málið Starf háskólakennara í umhverfisverkfræði og skyldum greinum" var afgreitt.
Tveir umsækjendur sóttu um starfið en annar þeirra dró umsóknina til baka. Sá sem sótti um starfið var Sigurður M. Garðarsson.
Formaður dómnefndar var Jónas Elíasson, prófessor. Aðrir í dómnefndinni voru Björn Gunnarsson, forstöðumaður Umhverfisstofnunar Háskóla Íslands og Ólafur Pétursson, efnaverkfræðingur. Formaður dómnefndar gerði grein fyrir álitinu. Niðurstöður dómnefndar voru þær að Sigurður væri hæfur til að gegna því starfi sem um ræðir.
Formaður u&b-skorar, Birgir Jónsson, gerði grein fyrir atkvæðagreiðslu í skor. Afgreiðsla skorar var á þá leið, á fundi þann 19. september sl. að skorin samþykkti samhljóða að mæla með því að Sigurður M. Garðarsson yrði ráðinn í starfið. Á fundinum voru 7, auk fulltrúa stúdenta.Deildarforseti og formaður u&b-skorar þökkuðu dómnefnd hennar störf.
Þá var gengið til atkvæðagreiðslu á deildarfundi. Niðurstöður deildarfundar urðu þær að 22 sögðu já, nei sagði enginn og 1 seðill var auður. Deildarfundur samþykkir því og leggur til við rektor, að Sigurður verði ráðinn í starfið.
Formaður dómnefndar var Júlíus Sólnes prófessor. Aðrir í dómnefndinni voru Magnús Þór Jónsson, prófessor og Ríkharður Kristjánsson, byggingarverkfræðingur. Formaður dómnefndar gerði grein fyrir álitinu. Niðurstöður dómnefndar voru þær að Bjarni Bessason fullnægi öllum kröfum sem gerðar eru um framgang dósents í starf prófessors og telur því Bjarna hæfan til að gegna starfi prófssors við verkfræðideild.
Formaður u&b-skorar gerði grein fyrir atkvæðagreiðslu í skor. Niðurstöður í skor, þar sem 7 voru mættir auk tveggja fulltrúa stúdenta, urðu þær að samþykkt var einróma á skorarfundi þann 19. september sl. að leggja til að Bjarna Bessasyni verði veittur framgangur í starf prófessors á grundvelli dómnefndarálits sem skorin hefur haft til umfjöllunar.
Deildarforseti og formaður u&b-skorar þökkuðu dómnefnd hennar störf.
Þá var gengið til atkvæðagreiðslu á deildarfundi. Niðurstöður deildarfundar urðu þær að já sögðu 21, 2 sögðu nei og 2 seðlar voru auðir. Deildarfundur samþykkir því og leggur til við rektor, að Bjarna Bessasyni verði veittur framgangur í starf prófessors.
Páll Jensson beinir því til deildarráðs að gerður verði samanburður á kostnaði við að kenna verkfræðinemum og tölvunarfræðingum við HÍ og í sambærilegum erlendum háskólum. Fundurinn samþykkti samhljóða að beina þessu verkefni til deildarráðs.