
Dagskrá
Miðvikudaginn 23. janúar 2002 kl. 12.25 var haldinn fundur í verkfræðideild í innri matsalnum í Tæknigarði. Mætt voru: Sigurður Brynjólfsson, Anna Soffía Hauksdóttir, Birgir Jónsson, Birna Pála Kristinsdóttir, Bjarni Bessason, Egill B. Hreinsson, Fjóla Jónsdóttir, Guðmundur R. Jónsson, Jóhann P. Malmquist, Jóhannes R. Sveinsson, Jón Atli Benediktsson, Jón Tómas Guðmundsson, Jónas Elíasson, Júlíus Sólnes, Magnús Már Halldórsson, Magnús Þór Jónsson, Oddur Benediktsson, Ólafur Pétur Pálsson, Páll Jensson, Páll Valdimarsson, Sigurður Erlingsson, Sven Þ. Sigurðsson, Trausti Valsson, Vilhjálmur Þór Kjartansson, Gunnar Karl Pálsson, Þorgeir Óskar Margeirsson og Kristján Þór Finnsson.
Forföll boðuðu Gunnar Svavarsson, Ebba Þóra Hvannberg, Baldvin Einarsson, Ágúst Guðmundsson.
Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Samþykkt án athugasemda.
Deildin fékk 44 miljónir í viðbótarfjárveitingu fyrir árið 2001 og leiðir af því að afgangur verður af rekstri ársins. Þá er hins vegar ekki tekið tillit til vinnu kennara yfir þaki, svokallaðra fyrninga.
Gerður hefur verið rannsóknasamningur við menntamálaráðuneytið. Deildarforseti kynnti helstu atriði þessa samnings.
Samkvæmt nýjum reglum háskólans eiga aðjúnktar nú seturétt á deildarfundum. Deildir geta ákveðið að veita aðjúnktum að auki atkvæðisrétt. Þá geta deildir ákveðið með hvaða hætti atkvæðisrétti kennara í hlutastarfi verði hagað. Deildarforseti reifaði málið og lagði til að aðjúnktar og kennarar í 37% hlutastarfi eða stærra færu með fullan atkvæðisrétt.
Um tillöguna urðu miklar umræður og komu fram mismunandi sjónarmið. Við tillögu deildarforseta um fullan atkvæðisrétt aðjúnkta kom fram breytingartillaga um að aðjúnktar færu með hálft atkvæði hver. Áður en til umræðna kom um breytingartillöguna var borin upp dagskrártillaga um að þessum lið yrði frestað svo deildarmönnum gæfist betri tími til að gera upp hug sinn. Dagskrártillagan var samþykkt í handauppréttingu með 12 atkvæðum gegn 3.
Óskað var eftir tilnefningum skora í stjórn verkfræðistofnunar, samkvæmt nýjum reglum. U&b tilnefnir Jónas Elíasson, Sigurð Erlingsson til vara, v&i tilnefnir Guðmund R. Jónsson, varamaður verður tilnefndur síðar, r&t tilnefnir Sigfús Björnsson, Jóhannes R. Sveinsson til vara. Þá var Sigurður Brynjólfsson deildarforseti einnig tilnefndur í stjórnina. Þessar tilnefningar voru allar samþykktar samhljóða. Loks var samþykkt samhljóða tilnefning Ebbu Þóru Hvannberg sem áheyrnarfulltrúa í stjórninni þar til tölvunarfræðiskor hefur komið upp rannsóknastofu við stofnunina.
Einn umsækjandi var um starfið, Helgi Þór Ingason, en hann hefur gegnt starfinu í eitt ár. Dómnefndaráliti um Helga, sem lagt var fram á deildarfundi 24. janúar í fyrra, hafði verið dreift fyrir fundinn. Í dómnefnd sátu Páll Jensson, formaður, Birna Pála Kristinsdóttir og Karl Friðriksson. Formaður dómnefndar, gerði grein fyrir álitinu þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að Helgi væri mjög vel hæfur. Formaður véla- og iðnaðarverkfræðiskorar lýsti áliti skorar sem samþykkti samhljóða að leggja til að Helgi yrði ráðinn í starfið frá 1. janúar sl.
Deildarfundur samþykkti að greiða atkvæði með handauppréttingu og í þeirri atkvæðagreiðslu var samþykkt samhljóða að leggja til að Helgi yrði ráðinn í hið auglýsta starf.