85. deildarfundur verkfræðideildar Yfirlitssíða

Dagskrá

Miðvikudaginn 28. nóvember 2001, kl 12:20, var haldinn 85. deildarfundur í verkfræðideild í fundarsal inn af veitingasal Tæknigarðs. Mættir voru: Sigurður Brynjólfsson, Anna Soffía Hauksdóttir, Birgir Jónsson, Birna Pála Kristinsdóttir, Bjarni Bessason, Björn Kristinsson, Ebba Þóra Hvannberg, Guðmundur R. Jónsson, Halldór Guðjónsson, Helgi Þorbergsson, Hjálmtýr Hafsteinsson, Jóhann P. Malmquist, Jóhannes Rúnar Sveinsson, Jón Atli Benediktsson, Jón Tómas Guðmundsson, Jónas Elíasson, Júlíus Sólnes, Magnús Þór Jónsson, Páll Jensson, Pétur K. Maack, Ragnar Sigbjörnsson, Sigfús Björnsson, Sigurður Erlingsson, Snorri Agnarsson og Trausti Valsson. Fulltrúar nemenda voru: Arnar Arinbjarnarson v&I, Þorlákur Guðjónsson v&I, Gunnar Karl Pálsson r&t og María Guðmundsdóttir töl.
Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.

Valdimar K. Jónsson er í rannsóknamisseri. Oddur Benediktsson og Þórður Runólfsson eru í leyfi.

Forföll boðuðu: Fjóla Jónsdóttir, Lárus Elíasson, Ólafur Pétur Pálsson, Páll Valdimarsson og Sven Þ. Sigurðsson.

Mál á dagskrá:

1. Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt án athugasemda.

2. Tilkynningar

Engar tilkynningar.

3. Dómnefndarálit vegna starfs í rafmagns- og tölvuverkfræði

Formaður dómnefndar, Anna Soffía Hauksdóttir, gerði grein fyrir álitinu. Með henni í dómnefnd voru Jón Atli Benediktsson, fulltrúi háskólaráðs og Aðalsteinn Guðjohnsen, skipaður af Menntamálaráðuneytinu. Tveir umsækjendur voru um starfið þeir Kristján Halldórsson og Magni Þór Pálsson. Niðurstöður dómnefndar voru þær að hvorugur umsækjenda uppfyllti skilyrði til ráðningar í dósentsstarf en báðir umsækjendur uppfylltu skilyrði til ráðningar í lektorsstarf skv. reglum þar um.

Formaður rafmagns- og tölvuverkfræðiskorar gerði grein fyrir niðurstöðum skorar um málið en þær voru þessar: Rafmagns- og tölvuverkfræðiskor tók málið fyrir á fundi sínum þann 26. nóvember síðastliðinn. Niðurstöður atkvæðagreiðslu í skor urðu þær að Magni Þór Pálsson fékk 6 atkvæði, Kristján Halldórsson fékk 1 atkvæði og 1 seðill var auður.

Þá var gengið til atkvæða á deildarfundinum. Atkvæði fóru þannig að Magni Þór fékk 18 atkvæði, Kjartan fékk 2 atkvæði og 5 seðlar voru auðir. Deildarfundur leggur því til að Magna Þór Pálssyni verði boðið starf lektors við rafmagns- og tölvuverkfræðiskor frá og með 1. janúar 2002.

4. Dómnefndarálit vegna starfs prófessors í tölvunarfræði við tölvunarfræðiskor

Snorri Agnarsson dómnefndarmaður, tilnefndur af háskólaráði, gerði grein fyrir álitinu. Formaður dómnefndar var Gísli Hjálmtýsson og þriðji dómnefndarmaður var Oddur Benediktsson tilnefndur af Menntamálaráðuneytinu. Tveir þeir síðarnefndu búa erlendis og voru ekki á landinu. Tveir umsækjendur voru um starfið þeir Kristján Jónasson og Magnús Már Halldórsson. Niðurstöður dómnefndar voru þær að Magnús Már Halldórsson væri eini umsækjandinn sem væri hæfur til að hljóta starf prófessors við tölvunarfræðiskor verkfræðideildar.

Formaður tölvunarfæðiskorar gerði grein fyrir niðurstöðum skorar á fundi sínum þann 7. nóvember síðastliðinn en þar var einróma lagt til að Magnúsi Má Halldórssyni yrði boðið starfið.

Á deildarfundinum var einungis greitt atkvæði um það hvort Magnúsi Má yrði boðið starfið. Niðurstöður atkvæðagreiðslu urðu þær að 24 sögðu já en 1 seðill var auður.

Óskað verður eftir samþykki rektors á ráðningu Magnúsar Más Halldórssonar í starf prófessors.

5. Reglur verkfræðideildar um doktorsnám

Guðmundur R. Jónsson formaður vísindanefndar deildar gerði grein fyrir Reglum verkfræðideildar um doktorsnám en tekið hefur verið mið af rammareglum Háskólans við samningu reglnanna. Allmargir tóku til máls um reglurnar. Síðan var gengið til atkvæða og voru reglurnar samþykktar einróma.

6. Þróunaráætlun verkfræðideildar

Deildarforseti gerði grein fyrir þróunaráætlun verkfræðideildar. Helstu áherslurnar í áætluninni eru að framhaldsnámið hefur forgang og að stefnt er að því að bæta þjónustu við nemendur í grunnnáminu enn frekar. Deildarforseti gerði einnig grein fyrir breytingum á reikni-/deililíkani. Að lokum skýrði hann frá væntanlegum Vísindagörðum og að stefna ætti að því að deildin flyttist þangað.

7. Önnur mál

Engin önnur mál.

Fleira ekki tekið fyrir á fundinum.
Fundi slitið kl 14:10

Jón Guðmar Jónsson
(sign)