
Dagskrá
Föstudaginn 20. apríl 2001, kl 12:15, var haldinn 84. deildarfundur í verkfræðideild í stofu VR-II (V-157).
Mættir voru: Valdimar K. Jónsson, Birgir Jónsson, Birna Pála Kristinsdóttir, Bjarni Bessason, Björn Kristinsson, Ebba Þóra Hvannberg, Fjóla Jónsdóttir, Gísli Hjálmtýsson, Guðmundur R. Jónsson, Helgi Þorbergsson, Hjálmtýr Hafsteinsson, Jóhann P. Malmquist, Jóhannes Rúnar Sveinsson, Jón Atli Benediktsson, Jón Tómas Guðmundsson, Jónas Elíasson, Júlíus Sólnes, Lárus Elíasson, Ólafur Pétur Pálsson, Páll Valdimarsson, Pétur K. Maack, Ragnar Sigbjörnsson, Sigfús Björnsson, Sigurður Brynjólfsson, Sigurður Erlingsson, Sven Þ. Sigurðsson og Vilhjálmur Þ. Kjartansson. Fulltrúar nemenda: Arnar Arinbjarnarson v&I, Guðmundur Andri Hjálmarsson töl, Gunnar Karl Pálsson r&t, Haraldur Guðmundsson v&I, Ingvar Rafn Gunnarsson u&b og Þorgeir Óskar Margeirsson u&b. Fundarritari var Jón Guðmar Jónsson.
Egill B. Hreinsson og Páll Jensson eru í rannsóknamisseri. Oddur Benediktsson er í leyfi.
Mál á dagskrá:
Samþykkt án athugasemda.
Deildarforseti skýrði frá því að vísindanefnd Háskólans hefði samþykkt lækkun kennsluskyldu dósentanna Birnu Pálu Kristinsdóttur og Fjólu Jónsdóttur fyrir fyrsta árið þeirra í starfi, sbr. heimild þar um fyrir nýráðna kennara.
Deildarforseti skýrði frá því að tölvunarfræðiskor hefði fengið samþykktan einn nýjan c-kassa í fimmta reikniflokki vegna aukins námsframboðs og vegna væntanlegs náms í hugbúnaðarverkfræði, sjá bréf fjármálanefndar háskólaráðs dags. 4. apríl 2000. Fjármálanefnd háskólaráðs samþykkti þessa breytingu fyrir sitt leyti á fundi sínum þann 26. mars 2001 og háskólaráð staðfesti þessa samþykkt á fundi sínum 3. apríl 2001. Breytingin verði framkvæmd í nóvember 2001 þegar árlegt uppgjör á grunni þreyttra eininga skólaársins 2000-2001 fer fram.
Þá gerir fjármálanefnd ekki neinar athugasemdir við væntanlegt nám í efnaverkfræði enda er ekki gert ráð fyrir aukinni fjárþörf vegna þess.
Deildarforseti gaf formanni dómnefndar dr. Bjarka Jóhannessyni, skipulagsfræðingi, forstöðumanni þróunarsviðs Byggðastofnunar orðið. Með honum í dómnefnd voru Börkur Bergmann, prófessor við Université du Québec a Montréal, fulltrúi háskólaráðs og Jón Kristinsson, prófessor við Technische Universiteit Delft, skipaður af Menntamálaráðuneytinu.
Formaður dómnefndar gerði ítarlega grein fyrir mati dómnefndar og forsendum þess mats. Í lögum og reglugerð um Háskóla Íslands segir um mat dómnefnda: "Að teknu tilliti til menntunar skal mat byggjast á eftirfarandi þáttum: Rannsóknum , kennslu og stjórnun".
Niðurstöður dómnefndar eru þær að dr. Trausti Valsson uppfylli þær kröfur sem gera má varðandi áðurnefnda þætti og sé þar með hæfur til að flytjast úr stöðu dósents í stöðu prófessors í skipulagsfræði við verkfræðideild Háskóla Íslands.
Formaður umhverfis- og byggingarverkfræðiskorar, Ragnar Sigbjörnsson prófessor, fékk því næst orðið. Gerði hann grein fyrir afgreiðslu skorar en á fundi hennar var samþykkt með sjö atkvæðum gegn einu að mæla með því að Trausti Valsson hlyti framgang út starfi dósents í starf prófessors.
Þá var gengið til atkvæðagreiðslu um framgang Trausta Valssonar í starf prófessors Niðurstöður hennar urðu þær að 19 sögðu já, nei sögðu 3 og 4 skiluðu auðu. Deildarfundur verkfræðideildar hefur því samþykkt fyrir sitt leyti og leggur til við rektor að Trausti Valsson hljóti framgang úr starfi dósent í starf prófessors og að framgangurinn taki gildi frá því að hann sótti um framganginn.
Þar sem óvíst var hvenær næsti deildarráðsfundur yrði lagði deildarforseti umsókn Bjarna Bessasonar um rannsóknamisseri haustið 2001 fyrir fundinn. Deildarfundur samþykkti umsóknina einróma.
Deildarforseti gerði grein fyrir því að deildin þyrfti að kjósa fulltrúa og varafulltrúa á háskólafund til tveggja ára frá og með 1. júlí 2001. Tillögur um fulltrúa og varamenn þeirra komu fram á fundinum. Auk deildarforseta á deildin rétt á þremur fulltrúum til viðbótar. Fyrir hvern aðalfulltrúa skal kjósa þrjá til vara.
Allir fulltrúar og varamenn þeirra voru kosnir samhljóða. Þeir verða:
Birgir Jónsson u&b-skor, varamaður Ragnar Sigbjörnsson, u&b. Jón Atli Benediktsson r&t-skor, varamaður Anna Soffía Hauksdóttir, r&t. Jóhann P. Malmquist tölvunarfræðiskor, varamaður Birna Pála Kristinsdóttir, v&I-skor.
Fleira ekki tekið fyrir á fundinum.
Fundi slitið kl 13:10
Jón Guðmar Jónsson
(sign)