
Dagskrá
Miðvikudaginn 24. janúar 2001 kl. 12.20 var haldinn fundur í verkfræðideild í stofu 158 í VR-II. Mætt voru: Valdimar K. Jónsson, Birgir Jónsson, Bjarni Bessason, Jónas Elíasson, Júlíus Sólnes, Ragnar Sigbjörnsson, Sigurður Erlingsson, Trausti Valsson, Birna Pála Kristinsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Guðmundur R. Jónsson, Lárus Elíasson, Magnús Þór Jónsson, Ólafur Pétur Pálsson, Páll Valdimarsson, Pétur K. Maack, Sigurður Brynjólfsson, Anna Soffía Hauksdóttir, Björn Kristinsson, Jóhannes R. Sveinsson, Jón Atli Benediktsson, Jón Tómas Guðmundsson, Vilhjálmur Þór Kjartansson, Helgi Þorbergsson, Hjálmtýr Hafsteinsson, Jóhann P. Malmquist, Sven Þ. Sigurðsson, Jóhannes Þorsteinsson, Margrét Vilborg Bjarnadóttir, Benedikt Ingi Tómasson, Guðmundur Andri Hjálmarsson, Gunnar Sigurjónsson og Jón Þór Sigurvinsson. Ritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Deildarforseti setti fundinn, og bauð nýráðinn lektor í r&t, Jón Tómas Guðmundsson, velkominn á fundinn. Þá bar hann upp tillögu að breyttri röð dagskrárliða og var hún samþykkt.
Samþykkt án athugasemda.
Einn umsækjandi var um fyrri stöðuna, (verkefnastjórnun), Helgi Þór Ingason. Í dómnefnd sátu Páll Jensson, formaður, Birna Pála Kristinsdóttir og Karl Friðriksson en hann sat fundinn undir þessum lið. Birna Pála gerði grein fyrir dómnefndarálitinu í fjarveru Páls Jenssonar sem er í rannsóknamisseri í Bandaríkjunum. Niðurstaða dómnefndar var sú að Helgi Þór væri mjög vel hæfur til að gegna starfi lektors við v&i.
Formaður v&i skorar sagði frá því að á fundi skorarinnar 16. janúar sl. hefði verið samþykkt einróma að mæla með ráðningu Helga í lektorsstarfið frá og með 1. september sl. Fram kom að um ráðningu til eins árs væri að ræða.
Eftir stuttar umræður var gengið til atkvæða. Þar urðu úrslit þau að 24 mæltu með því að Helgi yrði ráðinn, 1 skilaði auðu.
Um síðari stöðuna (stjórnun fyrirtækja) var líka einn umsækjandi, Lárus Elíasson. Páll Jensson, Birna Pála Kristinsdóttir og Karl Friðriksson skipuðu dómnefndina og var Páll formaður nefndarinnar. Birna Pála gerði grein fyrir dómnefndarálitinu. Niðurstaða dómnefndar var sú að Lárus Elíasson væri hæfur til að gegna starfi lektors við v&i. Fram komu nokkrar spurningar og athugasemdir.
Formaður v&i skorar sagði frá þvi að á fundi skorarinnar 16. janúar sl. hefði verið samþykkt einróma að mæla með ráðningu Lárusar í lektorsstarfið frá og með 1. september sl. til eins árs.
Síðan var gengið til atkvæða. Þar urðu úrslit þau að 13 mæltu með ráðningu Lárusar, 3 mæltu gegn henni, 10 skiluðu auðu.
Borist hefur bréf kennslustjóra þess efnis að háskólaráð þurfi ekki að fjalla um námsleið í hugbúnaðarverkfræði þar sem námið eigi að rúmast innan fjárveitinga deildarinnar 2001.
Deildarforseti tilkynnti að haldinn yrði aukaháskólafundur 23. febrúar næstkomandi. Fundurinn stendur í hálfan dag.
Borist hefur bréf frá þróunar- og kynningarsviði þar sem kynnt er námskynning Háskólans sem halda á með hefðbundnum hætti 1. apríl næstkomandi.
Rektorsskrifstofa hefur sent deildum beiðni um að þær taki saman þróunaráætlun, samkvæmt tiltekinni forsögn sem send hefur verið skorarformönnum. Deildarforseti hvatti skorarformenn að taka saman það sem að þeim snýr.
Deildarforseti lét í ljósi áhyggjur af fjárhagsstöðu deildar árið 2001. Fjárveiting verður 280 miljónir. Samkvæmt yfirliti sem Jón Guðmar Jónsson hefur tekið saman hefur fjárveiting á föstu verðlagi pr. stúdent í námi hríðlækkað síðastliðin sex ár. Þá gat deildarforseti þess að hann hefði mótmælt skiptingu aukafjárveitingar til Háskólans á síðastliðnu ári en af henni fékk verkfræðideild ekkert. 3.6 Stofnanir sem tengjast verkfræði og raunvísindum
Júlíus Sólnes hefur sent kennslustjóra minnisblað varðandi Umhverfisstofnun. Uppi eru hugmyndir um að setja Umhverfis- og Sjávarútvegsstofnanir niður í einhverri deild og að verkfræðideild vistaði aðra eða jafnvel báðar. Þá hefur komið til tals að Verkfræðistofnun, Raunvísindastofnun, Líffræðistofnun, Umhverfisstofnun og Sjávarútvegsstofnun yrði slegið saman að einhverju leyti og yrðu með sameiginlega skrifstofu.
Eftirfarandi stúdentar hafa sótt um meistaranám við deildina:
Vísindanefnd mælir með því að þessir umsækjendur verði teknir í meistaranám og samþykkti deildarfundur umsóknirnar samhljóða.
Minnt var á að Tómas Philip Rúnarsson, doktorsnemi í véla- og iðnaðarverkfræði, ver doktorsritgerð sína í Hátíðasal Háskólans mánudaginn 29. janúar nk. Viðstaddir voru hvattir til að hlýða á doktorsvörnina.
Sitjandi deildarforseti hefur lýst því yfir að hann gefi ekki kost á sér til endurkjörs. Samþykkt var að atkvæðagreiðsla um deildar- og varadeildarforsetaefni yrði endurtekin þar til einhver hefði hlotið hreinan meirihluta.
Stungið var upp á Sigurði Brynjólfssyni í embættið og bárust ekki fleiri tilnefningar. Sigurður kynnti síðan, umbeðinn, hvaða mál hann hygðist beita sér fyrir á forsetaferlinum. Fram fór atkvæðagreiðsla þar sem Sigurður hreppti 25 atkvæði, Jónas Elíasson 2, Anna Soffía Hauksdóttir 1, Ólafur Pétur Pálsson 1, 2 skiluðu auðu.
Stungið var upp á Sven Þ. Sigurðssyni í embætti varadeildarforseta. Kjörinu lyktaði þannig að Sven hreppti 28 atkvæði, Magnús Þór Jónsson 1, 2 skiluðu auðu.
Umsækjendur um starf prófessors við tölvunarfræðiskor eru tveir: Kristján Jónasson og Magnús M. Halldórsson. Tölvunarfræðiskor leggur til að Gísli Hjálmtýsson verði fulltrúi deildar í dómnefnd. Deildarfundur samþykkti tilnefninguna samhljóða.
Umsækjendur um starf rannsóknaprófessors í raforkuverkfræði eru tveir: Kristján Halldórsson og Magni Þór Pálsson. Rafmagns- og tölvuverkfræðiskor leggur til að Anna Soffía Hauksdóttir verði fulltrúi deildar í dómnefnd. Deildarfundur samþykkti tilnefninguna samhljóða.
Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 13.40