132. fundur deildarráðs verkfræðideildar

Miðvikudaginn 15. janúar 1997 kl. 12.25 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundarherberginu í VR-II.

Mættir voru: Björn Kristinsson, Jónas Elíasson, Sigurður Erlingsson, Sæmundur Óskarsson, Valdimar K. Jónsson og Pétur Örn Richter.
Ritari var Pálmi Jóhannesson.

Þetta gerðist.

1. Fjárhagsstaðan

Dreift var yfirliti yfir stöðu deildarinnar. Deildin stendur mjög illa, almennur rekstur, u&b og v&i skorir fara talsvert fram úr fjárveitingu, rafmagnsverkfræðiskor hefur hins vegar bætt stöðu sína á árinu. Samþykkt var að skrifstofustjóri dreifði töflum yfir áætlaða kennslu árið 1997 með útreikningi á launum þegar fleiri samningar fyrir vormisseri 1997 eru komnir inn, væntanlega eftir hálfan mánuð.

2. Nemendamál

2.1 Skipanir í M.S.-nefndir

Formaður b&u lagði til að Sigurður Erlingsson, Hreinn Haraldsson og Björn Harðarson yrðu skipaðir í M.S.-nefnd Ægis Jóhannssonar, sá fyrstnefndi formaður. Ennfremur að Sigurður Erlingsson, Hreinn Haraldsson og Valur Guðmundsson yrðu skipaðir í M.S.-nefnd Elísabetar Urbancic, sá fyrstnefndi formaður. Báðar tillögur voru samþykktar samhljóða.

2.2 Undanþága til þriðju próftöku í Stærðfræðigreiningu IIB

Formaður v&i skorar bar upp erindi Geirs Ómarssonar sem hefur fallið tvívegis í Stærðfræðigreiningu IIB. Geir fer fram á undanþágu til að mega fara í próf í þriðja skipti. Deildarráð samþykkti að veita undanþáguna en í bréfi til Geirs verði honum gerð skýr grein fyrir því að annað tækifæri fái hann ekki til að ljúka námskeiðinu.

2.3 Stærðfræðigreining IC/IB

Stúdent á fyrsta ári í efnafræði óskar að umskrá sig í v&i. Stúdentinn hefur lokið Stærðfræðigreiningu IC. Skorin benti honum á að taka próf í Stærðfræðigreiningu IB í ágúst nk. enda verður próftökuréttur í IC viðurkenndur gildur í IB. Málið var lagt fram til kynningar.

3. Auglýsing um prófessorsstörf

3.1 Starf Þorbjörns Karlssonar
Þorbjörn Karlsson verður sjötugur í maí nk. Skv. nýjum reglum verður hann að láta af störfum í lok þess mánaðar. Formaður v&i viðraði hugmyndir um að nýr maður yrði ráðinn í starfið um næstu áramót. V&i skor hefur einnig kannað möguleika á að ráða fastan kennara í nýtt starf í efnisfræði um mitt þetta ár. Fátt er því til fyrirstöðu ef skorin getur aflað fjár til að standa undir rannsóknaþætti þess starfs. Formaður skorarinnar gerði ráð fyrir að það tækist. Samþykkt var að fela honum að ræða málið nánar við rektor.
3.2 Dómnefnd um starf prófessors í raforkufræðum

R&t skor leggur til að Egill B. Hreinsson verði formaður dómnefndar um umsækjendur um starf prófessors í raforkufræðum sem auglýst var sl. haust. Tillagan var samþykkt samhljóða eftir nokkrar umræður.

4. Skipulagsmál

4.1 Um skipan í nefndir deildar
Samþykkt var tillaga deildarforseta um að formlega yrði skipað í fastanefndir deildarinnar í upphafi skólaárs og fylgdi skipunartíminn skólaárinu. Skorarformönnum var falið að koma tilnefningum í nefndir á þessu skólaári til deildarforseta. JónasElíasson situr einn eftir í húsnefnd VR-II sem upphaflega var skipuð þremur mönnum. Jónas sagði viðhaldi hússins mjög ábótavant og erfitt að eiga við viðhaldsdeild háskólans. Samþykkt var að skipa Jónas aftur í nýja húsnefnd og að leita eftir fulltrúa raunvísindadeildar í nefndina. Auk þeirra ætti umsjónarmaður hússins sæti í henni.
4.2 Um skipulag kennslu

Deildarforseti varpaði fram spurningum um hvort skorir vildu ekki skilgreina ákveðnar námslínur með tilteknum námskeiðum og hvort kennarar ættu sjálfir að velja kennslugreinar eða skorir að úthluta kennslunni. Formönnum skora var falið að kynna málið í skorum.

5. Tölvutilboð

Deildin hefur fengið tilboð í tölvur frá Opnum kerfum. Deildarráð fól deildarforseta að ræða málið við háskólaritara.

6. Stefnumál deildar

Deildarforseti bað formenn að halda umræðunum áfram úti í skorum. Deildarráð mun bráðlega halda fund með kennsluskrárnefnd um þessi mál.

7. Önnur mál

7.1 Útreikningur á vinnu kennara

Rætt var hvernig vinna kennara er reiknuð út í námskeiðum, aðallega þar sem kennarar skipta kennslu á milli sín. Deildar- og varadeildarforsetum var falið að leysa málið.

7.2 Tafir á skipun dómnefndar í r&t

Jónas Elíasson spurði hvað hefði valdið langri töf á að skipa í dómnefnd um raforkufræðistarfið sem auglýst var sl. haust. Deildarforseti kvað málið hafa verið í athugun.

Fleira gerðist ekki.
Punktar úr fundargerð lesnir upp og samþykktir.
Fundi slitið kl. 14.17.